Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir myndríkar barnabækur. Rúmlega fimmtíu handrit bárust að þessu sinni sem er metþátttaka. 

Matthildur Yrsa Sigurðardóttir, Þórunn Rakel Gylfadóttir og Didda Flygenring hlutu Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026. Verðlaunin voru afhent þriðjudaginn 15. september við hátíðlega athöfn í Bókabúð Forlagsins við Fiskislóð. 

í dómnefnd sátu Anna Cynthia Leplar, Guðrún Lára Pétursdóttir og Sölvi Sveinsson sem er fulltrúi Sumargjafar. 

Síðasti dagurinn fjallar um atburði sem greyptir eru í vitund þjóðarinnar en er sjaldan fjallað um frá sjónarhóli barna. Matthildur Yrsa Sigurðardóttir var ellefu ára þegar náttúruhamfarirnar í Grindavík hófust en hér segir hún frá reynslu sinni í samvinnu við Þórunni Rakel Gylfadóttur. Didda Flygenring myndlýsir“. 

Í umsögn dómnefndar segir: „Textinn er knappur og blátt áfram en einlæg rödd barnsins skín í gegn og gerir lesendum kleift að setja sig í spor Grindvíkinga. Með persónulegum teiknistíl og markvissri litanotkun fangar Didda Flygenring í senn skelfinguna sem fylgdi náttúruhamförunum sem og öryggið og hlýjuna sem ástrík fjölskylda veitir á erfiðum tímum. Síðasti dagurinn er einstakt verk um þýðingu þess að eiga heimili, tilheyra samfélagi og upplifa öryggi, bók sem vekur samkennd og eykur skilning á málefnum sem varða okkur öll.“