islensku_barnabokaverdlaunin

Stofnað var til Íslensku barnabókaverðlaunanna 1985 í tilefni af sjötugsafmæli rithöfundarins Ármanns Kr. Einarssonar og voru verðlaunin veitt í fyrsta sinn vorið 1986. Að verðlaununum standa fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Barnavinafélagið Sumargjöf, IBBY á Íslandi og Forlagið. Fulltrúar þessara aðila skipa dómnefnd, auk tveggja nemenda úr 8. bekk.

Frekari upplýsingar um íslensku barnabókaverðlaunin má finna á heimasíðu Forlagsins.

Íslensku barnabókaverðlaunin hafa verið veitt fyrir eftirtaldar bækur:

Emil og Skundi eftir Guðmund Ólafsson, 1986
Franskbrauð með sultu eftir Kristínu Steinsdóttur, 1987
Fugl í búri eftir Kristínu Loftsdóttur, 1988
Álagadalurinn eftir Heiði Baldursdóttur, 1989
Í pokahorninu eftir Karl Helgason, 1990
Gegnum þyrnigerðið eftir Iðunni Steinsdóttur, 1991
Benjamín dúfa eftir Friðrik Erlingsson, 1992
Brak og brestir eftir Elías Snæland Jónsson, 1993
Röndóttir spóar eftir Guðrúnu H. Eiríksdóttur, 1994
Eplasneplar eftir Þóreyju Friðbjörnsdóttur, 1995
Grillaðir bananar eftir Ingibjörgu Möller og Fríðu Sigurðardóttur, 1996
Margt býr í myrkrinu eftir Þorgrím Þráinsson, 1997
Heljarstökk afturábak eftir Guðmund Ólafsson, 1998
Leikur á borði eftir Ragnheiði Gestsdóttur, 2000
Sjáumst aftur … eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur, 2001
Ferðin til Samiraka eftir Hörpu Jónsdóttur, 2002
Bíóbörn eftir Yrsu Sigurðardóttur, 2003
Leyndardómur ljónsins eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, 2004
Háski og hundakjöt eftir Héðin Svarfdal Björnsson, 2006
Loforðið eftir Hrund Þórsdóttur, 2007
Steindýrin eftir Gunnar Theodór Eggertsson, 2008
Þvílík vika eftir Guðmund Brynjólfsson, 2009
Ertu Guð, afi? eftir Þorgrím Þráinsson, 2010
Flugan sem stöðvaði stríðið eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, 2011
Hrafnsauga eftir Kjartan Yngva Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson, 2012
Leitin að Blóðey – Ótrúleg ævintýri afa eftir Guðna Líndal Benediktsson, 2014
Arftakinn eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur, 2015
Skóladraugurinn eftir Ingu Mekkin Beck, 2016
Er ekki allt í lagi með þig? eftir Elísu Jóhannsdóttur, 2017
STORMSKER – Fólkið sem fangaði vindinn eftir Birki Blæ Ingólfsson, 2018
Rannsóknin á leyndardómum Eyðihússins eftir Snæbjörn Arngrímsson, 2019
Vampírur, vesen og annað tilfallandi eftir Rut Guðnadóttur, 2020
Ljósberi eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson, 2021

Í þrjú skipti var auglýst sérstaklega eftir myndskreyttum handritum og urðu þessi þá hlutskörpust:

Veislan í barnavagninum eftir Herdísi Egilsdóttur og Erlu Sigurðardóttur, 1995
Risinn þjófótti og skyrfjallið eftir Sigrúnu Helgadóttur og Guðrúnu Hannesdóttur, 1996
Sagan af undurfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum hennar eftir Margréti Tryggvadóttur og Halldór Baldursson, 2006