Starfsemi Sumargjafar starfsárið 2025 – 2026

Aðalfundur Sumargjafar 2026 var haldinn í Grænuborg mánudaginn 15. júní 2026. Þar var flutt skýrsla um starfsemi félagsins frá aðalfundi 2025 til aðalfundar 2026. Helstu atriðin fara hér á eftir.

Aðalfundur 2025

Starfsárið hófst á aðalfundi, sem var haldinn í Grænuborg fimmtudaginn 12. júní 2025. Þar voru venjuleg aðalfundarstörf og kosið í stjórn, sem var óbreytt. Á fundi stjórnar að loknum aðalfundi var ákveðið að verkaskipting verði óbreytt:

Formaður: Kristín Hagalín Ólafsdóttir.
Gjaldkeri: Gerður Sif Hauksdóttir.
Ritari: Sigurjón Páll Ísaksson.
Meðstjórnendur: Helga Hallgrímsdóttir, Hildur Biering, Sölvi Sveinsson og Kristinn H. Þorsteinsson.
Varamenn: Rósa Björg Brynjarsdóttir og Bergsteinn Þór Jónsson.

Í eigu Sumargjafar eru leikskólarnir Grænaborg og Steinahlíð. Reykjavíkurborg hefur leikskólana á leigu og annast rekstur þeirra. Einnig á félagið íbúð á Hallgerðargötu 1A, 3. hæð, þar sem aðsetur félagsins er.

Verðlaunasjóður barnabók: Sólfaxi – Íslensku barnabókaverðlaunin

Sjóðurinn var stofnaður 1985 og standa að honum Forlagið, fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Íslandsdeild IBBY-samtakanna og Sumargjöf (frá 1988).

Verðlaun síðasta árs voru afhent fimmtudaginn 18. september 2025 í nýju viðburðarými í Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39. Birna Daníelsdóttir fékk þá verðlaunin fyrir bókina Ég bý í Risalandi. Þetta er myndskreytt bók fyrir yngstu börnin og lýsir sjónarhóli þeirra. Í desember bárust þau gleðitíðindi að bókin hafi verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í barnaflokki. Hún hefur hlotið góðar viðtökur og var í apríl tilnefnd til barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar fyrir myndlýsingar.

Vorið 2025 var auglýst eftir handritum að verðlaunabók 2026, með skilafresti til 15. október 2025. Alls barst 51 handrit að barnabókum og liggur niðurstaða um verðlaunabók fyrir; hún kemur út í haust. Auglýst hefur verið eftir handritum að verðlaunabók 2027, skilafrestur er til 1. október 2026. – Sumargjöf leggur sjóðnum til fjárhæð verðlaunanna, sem nema nú 1,5 Mkr.

Verðlaunin hafa verið veitt í 34 skipti, en alls eru verðlaunabækurnar orðnar 37. – Sölvi Sveinsson er fulltrúi Sumargjafar í dómnefnd og í stjórn sjóðsins.

Styrkir

Í vetur ræddi stjórnin hvort eigi að auglýsa styrki eins og áður, eða tiltaka eitthvert áherslusvið, eða að velja styrktaraðila. Salvöru Nordal umboðsmanni barna var boðið á fund í nóvember til að ræða málefni barna og möguleg verkefni sem vert væri að styrkja. Í samræmi við hugmyndir frá Salvöru var ákveðið að veita eftirfarandi styrki að þessu sinni:

Okkar heimur: samtök sem sinna börnum sem eiga foreldra með geðrænan vanda.
Hjálparstarf kirkjunnar: Stuðningur við börn og barnafjölskyldur innanlands.
Sjúkrahústrúðarnir

Heildarupphæð styrkjanna er: 8.500.000 kr. – Stefnt er að því að veita styrki árlega.

Steinahlíð

Borgarlína og Sæbrautarstokkur

Stærsta málið sem tengist Steinahlíð er fyrirhuguð Borgarlína, sem áætluð er um suðurjaðar lóðar Steinahlíðar. Deiliskipulag Sæbrautarstokks hefur nú verið auglýst. Það er í samræmi við samning Sumargjafar við borgina. Skerðing lóðar að sunnan er 4.659 fm, sem er bætt upp með jafn stórri spildu að norðaustan, sem er að hluta ofan á stokknum. Aðkoma að lóð verður frá Gnoðarvogi. Ekki er ljóst hvort landið sem við fáum í skiptum er innan girðingar. Göngustígur liggur þar í gegn við núverandi lóðamörk, með umsögninni: „Kvöð um gönguleið.“ Stjórnin er sammála um að setja athugasemd inn í samráðsgátt.

Nýr leikskóli eða Ævintýraborg í Steinahlíð

Eins og áður hefur komið fram var borgin með hugmynd um nýjan og stærri leikskóla í Steinahlíð. Sumargjöf fékk Alta ráðgjöf í undirbúningsvinnu sem hefur að mestu legið niðri frá hausti 2023 og er óvíst um framhaldið. Þessi vinna kemur eflaust að gagni ef haldið verður áfram með málið.

Göngustígur og hlið á girðingu

Foreldrar í Steinahlíð hafa óskað eftir göngustíg meðfram innkeyrslu til að minnka slysahættu. Einnig væri hagræði að fá hlið á girðingu neðan við gamla húsið því að nokkur börn úr Vogabyggð eru í Steinahlíð, það myndi bæta tengingu við þetta nýja hverfi. Málið er í athugun, en fyrirhuguð vinna við Sæbrautarstokk getur sett strik í reikninginn.

Gamla Steinahlíðarhúsið

Í húsinu er ein leikskóladeild fyrir 21 barn. Hugmyndir voru um að setja upp ramp fyrir fatlaða við gamla húsið. Málið var skoðað í nóvember með Dofra Frey Guðnasyni arkitekt og kom í ljós að rampurinn þarf að vera 11-13 m langur. Í ljósi þess að rampurinn er talsverð útlitsbreyting og er dýr miðað við ávinning, var ákveðið að láta hann bíða í bili.

Lóð í Steinahlíð

Matjurtagarðurinn er nýttur af foreldrum, starfsfólki og öðrum, og var meira notaður en árið áður. Kristinn H. Þorsteinsson hefur haft umsjón með umhirðu lóðar, sem er í höndum verktaka.

Grænaborg

Viðhaldsmál

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun gerði úttekt á raflögnum og kom með ábendingar um eitthvað sem þarf að laga en ekkert meiriháttar. – Síðastliðið haust varð vart við raka í eldri hluta hússins en minna í þeim nýja. Í framhaldinu voru lagnir undir húsinu og á lóð myndaðar. Borgin fékk Verkvist verkfræðistofu til að kanna málið nánar. Úttektarskýrsla frá Verkvist barst í byrjun mars og var fundur um hana á netinu 4. mars. Þann 30. mars barst endurbætt skýrsla frá Verkvist, með forgangsröðun og áfangaskiptingu. Þar eru inniviðgerðir í sumarlokun 2026 metnar á um 20 Mkr. Viðgerðir á lóð sumarið 2027 um 50 Mkr. og aðrar viðgerðir eftir því sem fjármagn leyfir um 41 Mkr., samtals um 111 Mkr. Stjórnin telur að áður en lagt er í frekari vinnu við mat á viðhaldsþörf og kostnaði, þurfi að fá úr því skorið hver beri kostnað af framkvæmdum og í hvaða hlutföllum. Samþykkt var að biðja Sigurð Örn Hilmarsson lögfræðing hjá Rétti að meta stöðu okkar gagnvart borginni. Þann 9. júní var borginni sent bréf, þar sem sjónarmið Sumargjafar voru reifuð og óskað eftir viðræðum um málið.

Bílastæðamál við Grænuborg

Bílastæðagjöld starfsmanna eru veruleg og hvorki er stæði fyrir fatlaða né fyrir sendibíla sem þjónusta leikskólann. Í lóðarleigusamningi kemur fram að bílastæði við Mímisveg séu samnýtt með Ásmundarsal. Skoða þarf bílastæðamálin nánar með borginni.

Stuðningur við Grænuborg og Steinahlíð

Sumargjöf hefur reynt að gera vel við starfsfólk í Grænuborg og Steinahlíð, til dæmis í sambandi við afmæli leikskólanna. Starfsmannafélögin fá árlegan styrk og leikskólarnir fá nokkurn styrk til kaupa á kennslugögnum.

Tímaritið Börn og menning

Það er gefið út af Ibby á Íslandi, sem eru frjáls félagasamtök um barnabókmenntir og barnamenningu. Sumargjöf styrkir tímaritið með 10 áskriftum.

Heimasíðan sumargjof.is:

Rósa Björg Brynjarsdóttir hefur undanfarin ár haft umsjón með vefsíðu og Facebook-síðu félagsins. Þar eru meðal annars tenglar á rit sem félagið hefur gefið út og umfjöllun um bókina Börn í Reykjavík með ritdómum og kynningarefni.

Fjármál Sumargjafar

Endurskoðun og ráðgjöf (Henrý Örn Magnússon) hefur undanfarin ár verið endurskoðandi félagsins og sér einnig um rukkun leigu.