Styrkir til verkefna í þágu barna árið 2022

Barnavinafélagið Sumargjöf auglýsir hér með til umsóknar styrki á sviði rannsókna, lista og þróunarverkefna í þágu barna. Að þessu sinni verður sérstaklega litið til vandaðra umsókna ætluð börnum á leikskólaaldri.

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að fylla út umsókn á sérstöku eyðublaði og senda það síðan í viðhengi á netfang Sumargjafar, [email protected].

Stjórn Sumargjafar áskilur sér rétt til að óska eftir nánari upplýsingum um verkefnin og leita umsagnar fagaðila.

Umsóknarfrestur er til og með 7. mars 2022. 

Reykjavík, 27. janúar 2022.
Barnavinafélagið Sumargjöf


Umsóknareyðublað

Merki Sumargjafar