Steinahlíð
Á 25 ára afmælisdegi Barnavinafélagsins Sumargjafar barst félaginu vegleg gjöf en það var húsið Steinahlíð (byggt árið 1932) við Suðurlandsbraut ásamt rúmgóðu landi með túni, görðum og trjálundum. Einkaerfingjar hjónanna Elly Schepler Eiríksson og Halldórs Eiríkssonar stórkaupmanns gáfu félaginu Steinahlíð til minningar um foreldra sína, að ósk föður þeirra. Gjöfinni fylgdu þau skilyrði að eignin skyldi eingöngu notuð til að starfrækja barnaheimili, þar sem áhersla yrði á trárækt og matjurtarækt.
Hin höfðinglega gjöf lýsti vel hugarfari þeirra hjóna og barna þeirra. Ýmsu þurfti að breyta og lagfæra en starfsemi leikskóla hófst þó strax haustið 1949. Ida Ingólfsdóttir var fyrsta forstöðukona Steinahlíðar og gengdi hún því starfi til 1982 þegar hún náði aldursmörkum, eða í 33 ár. Hún var jafnan kennd við Steinahlíð, enda bjó hún þar í risinu.
Í Steinahlíð er enn í dag rekinn leikskóli og mikil áhersla lögð á trjárækt og matjurtarækt.
Uppeldisskóli Sumargjafar var starfræktur í Steinahlíð árin 1949–1952.
Í árslok 2011 fékk Reykjavíkurborg leyfi til að setja færanlegt hús á lóð Steinahlíðar. Það var tekið í notkun í ársbyrjun 2015 og eru þar reknar tvær leikskóladeildir, en sú þriðja er í gamla húsinu.
Aldingarður æskunnar
Aldingarður æskunnar er samstarfsverkefni Garðyrkjufélags Íslands og Sumargjafar. Verkefnið er unnið að frumkvæði Garðyrkjufélags Íslands eftir hugmynd Kristins H. Þorsteinssonar. Hönnun og útfærsla er í höndum Dagnýjar Bjarnadóttur landslagsarkitekts.
Hugmyndin felst í því að koma upp sérstökum trjáreitum með ávaxtatrjám og berjarunnum í náinni samvinnu við leikskóla landsins, foreldra, sveitarfélög og aðra velunnara í sem flestum sveitarfélögum landsins. Formleg gróðursetning fyrstu trjánna var miðvikudaginn 25. júní 2014 við leikskólann Steinahlíð. Þuríður Backman formaður Garðyrkjufélags Íslands og Kristín Ólafsdóttir varaformaður Sumargjafar, ávörpuðu samkomuna sem samanstóð af starfsfólki Steinahlíðar, nemendum, foreldrum og velunnurum verkefnisins áður en hafist var handa við að gróðursetja ávaxtatrén og ný og áhugaverð berjayrki. Að lokum fengu allir nýpressaðan rabbarbarasafa og epli.
Sumargjöf og Garðyrkjufélag Íslands eiga margt sameiginlegt. Félögin eru bæði áhugamannafélög, stofnuð til að bæta úr óviðunandi ástandi hvort á sínu sviði, með velferð barna, umhverfis og heilsu að leiðarljósi. Garðyrkjufélagið með því að bæta umhverfi og auka hollustu í mataræði landsmanna sem var snar þáttur í baráttunni fyrir bættu heilbrigði og lækkun ungbarnadauða. Tilgangur Sumargjafar hefur verið að stuðla að andlegu og líkamlegu heilbrigði og þroska barna og vernda þau fyrir óhollum áhrifum.
Eitt af hlutverkum Garðyrkjufélagsins er að leiða saman ólíkar kynslóðir og skapa skilyrði fyrir vaxandi ræktunarmenningu ungs fólks. Aldingarður æskunnar er kjörinn vettvangur til þess. Áhugi almennings á hvers kyns ræktun hefur aukist. Hvað ræktunarskilyrði varðar hafa frumkvöðlar í ræktun, með bjartsýni og þolinmæði, sýnt að trén geta borið ávexti utanhúss hér á landi. Sæmundur Guðmundsson og Eyrún Óskarsdóttir á Hellu eru þau fyrstu sem hófu markvissa ræktun ávaxtatrjáa. Þau fluttu sín fyrstu tré inn árið 1994 og voru það eplatré og yrkin Transparent Blanche, Haugmann og Sävstaholm. Þessi yrki er nú búið að gróðursetja í Steinahlíð. Árangur af ávaxtarækt getur tekið nokkur ár, en ef rétt er að staðið geta trén borið ávexti hér á landi utandyra. Með þeirri þekkingu sem Garðyrkjufélagið býr að verður spennandi að fylgjast með Aldingarði æskunnar dafna.
