Stofnað var til Íslensku barnabókaverðlaunanna 1985 í tilefni af sjötugsafmæli rithöfundarins Ármanns Kr. Einarssonar og voru verðlaunin veitt í fyrsta sinn vorið 1986. Árið 2024 var fyrirkomulagi verðlaunanna breytt og eru þau nú eingöngu veitt fyrir myndríka bók.  Framvegis munu verðlaunin heita: Sólfaxi – Íslensku barnabókaverðlaunin. Að verðlaununum standa fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Barnavinafélagið Sumargjöf og Forlagið. Barnavinafélagið Sumargjöf veitir verðlaunafé en skipar auk þess einn í dómnefnd. 

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Forlagsins.

Verðlaunahafar

2025 – Birna Daníelsdóttir, Ég bý í risalandi

2021 – Ólafur Gunnar Guðlaugsson, Ljósberi

2020 – Rut Guðnadóttir, Vampírur, vesen og annað tilfallandi

2019 – Snæbjörn Arngrímsson, Rannsóknin á leyndardómum eyðihússins

2018 – Birkir Blær Ingólfsson, Stormsker

2017 – Elísa Jóhannsdóttir, Er ekki allt í lagi með þig?

2016 – Inga M. Beck, Skóladraugurinn

2015 – Ragnheiður Eyjólfsdóttir, Arftakinn

2014 – Guðni Líndal Benediktsson, Leitin að Blóðey

2012 – Kjartan Yngvi Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson, Hrafnsauga

2011 – Bryndís Björgvinsdóttir, Flugan sem stöðvaði stríðið

2010 – Þorgrímur Þráinsson, Ertu Guð, afi?

2009 – Guðmundur Brynjólfsson, Þvílík vika

2008 – Gunnar Theodór Eggertsson, Steindýrin

2007 – Hrund Þórsdóttir, Loforðið

2006 – Margrét Tryggvadóttir og Halldór Baldursson, Sagan af undurfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum hennar

2006 – Héðinn Svarfdal Björnsson, Háski og hundakjöt

2004 – Brynhildur Þórarinsdóttir, Leyndardómur ljónsins

2003 – Yrsa Sigurðardóttir, Biobörn

2002 – Harpa Jónsdóttir, Ferðin til Samiraka

2001 – Gunnhildur Hrólfsdóttir, Sjáumst aftur…

2000 – Ragnheiður Gestsdóttir, Leikur á borði

1998 – Guðmundur Ólafsson, Heljarstökk afturábak

1997 – Þorgrímur Þráinsson, Margt býr í myrkrinu

1996 – Ingibjörg Möller, Grillaðir bananar

1995 – Herdís Egilsdóttir, Veislan í barnavagninum

1995 – Þórey Friðbjörnsdóttir, Eplasneplar

1994 – Guðrún Hafdís Eiríksdóttir, Röndóttir spóar

1993 – Elías Snæland Jónsson, Brak og brestir

1992 – Friðrik Erlingsson, Benjamín dúfa

1991 – Iðunn Steinsdóttir, Gegnum þyrnigerðið

1990 – Karl Helgason, Í pokahorninu

1989 – Heiður Baldursdóttir, Álagadalurinn

1988 – Kristín Loftsdóttir, Fugl í búri

1987 – Kristín Steinsdóttir, Franskbrauð með sultu

1986 – Guðmundur Ólafsson, Emil og Skundi