Í upphafi árs 2019 auglýsti Sumargjöf eftir umsóknum um styrki til verkefna í þágu barna. Alls bárust 33 umsóknir. Stjórn félagsins komst að þeirri niðurstöðu að veita þrettán styrki að þessu sinni. Styrkirnir voru afhentir í leikskólanum Grænuborg sunnudaginn 5. maí 2019.
Fyrir og eftir afhendingu styrkjanna spiluðu Gréta Petrína Zimsen og Hrafnhildur Halla Sigurðardóttir á fiðlu við píanóundirleik Júlíönu Indriðadóttur skólastjóra Tónskóla Sigursveins. Nýtt píanó Grænuborgar var vígt við athöfnina.
Eftirtalin verkefni hlutu styrki (til að fá nánari lýsingu á verkefnunum veljið hvert verkefni fyrir sig):
1. Myndlistarnámskeið fyrir fjölfötluð börn á leikskólaaldri
Börnin eru á aldrinum 1-7 ára og sækja þjónustu Áss styrktarfélags í Bjarkarás í Stjörnugróf 9 þar sem rekin er sérhæfð leikskóladeild. Myndlistarnámskeiðið verður haldið í samvinnu við Myndlistarskólann í Reykjavík og fer fram í Bjarkarási en börnin eiga, sökum heilsu sinnar erfitt með að sækja tilboð annars staðar.
Styrkþegi : Ás, styrktarfélag
Tengiliður: Valgerður Unnarsdóttir
2. Bókin Stórhættulega stafrófið
Stórhættulega stafrófið er ný bók fyrir börn eftir Ævar Þór Benediktsson, sem kunnur er af geysivinsælum bókum fyrir börn á undanförnum árum (Lestrarátakið sem hófst 2014/2015 og var að ljúka núna), og Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur. Bókin fjallar um 7 ára gamla stelpu sem kann ekki enn að lesa og þorir ekki að segja neinum frá því. Styrkurinn er ætlaður til myndskreytingar á bókinni en það er Bergrún Íris sem annast myndskreytinguna. Forlagið gefur út og er stefnt að útgáfu haustið 2019.
Styrkþegar: Bergrún Íris Sævarsdóttir og Ævar Þór Benediktsson.
3. Útijóga með dæmisögum Esóps
Verkefnið felst í því að hafa ævintýralegan jógatíma úti á skólalóðinni sem byggist á Childplay Yoga kennslufræði Gurudass Kaur og dæmisögum Esóps. Auk þess verður notast við möntrur, tónlist og dans. Hver tími verður 30-40 mínútur og ætlaður fyrir 10-15 börn á aldrinum 3ja-5 ára. Markmiðið er að börnin fái hvatningu og innblástur til að taka þátt í æfingunum – að þau haldi áhuga á jógaævintýrinu og skemmti sér vel um leið og að þau kynnist mismunandi jógaæfingum og dragi jafnvel einhvern lærdóm úr dæmisögum Esóps.
Styrkþegi: Bergþóra Einarsdóttir.
4. Foreldravaktin – lifandi fræðsla fyrir foreldra og börn um málþroska og læsi
Um er að ræða þróunarverkefni og er markmiðið að opna vefgátt/heimasíðu í rafrænu formi fyrir foreldra allra barna frá 0 – 10 ára sem fræðir þá um hvað barn þeirra á að geta í málþroska, orðaforða, framburði íslensku málhljóðanna og læsi á hverju aldursskeiði. Jafnframt verða kynntar leiðir til að örva mál og tal og boðið upp á sérstök verkefni fyrir börn sem foreldrar geta unnið með þeim heima. Með veitingu styrksins munu foreldrar geta nálgast efnið sér að kostnaðarlausu.
Styrkþegi: Bryndís Guðmundsdóttir kennari og talmeinafræðingur
5. Lokbrá – kennslutölvuleikur til að undirbúa börn undir svæfingu
Árlega fara nokkur þúsund börn í svæfingu á Íslandi, t.d. vegna skurðaðgerða, tannaðgerða eða annrrar læknismeðferðar. Í þessu verkefni, sem er íslensk hugmynd og nýjung á alþjóðavísu, verður hannaður og prófaður nýr kennslutölvuleikur sem hefur þann tilgang að undirbúa börn, 4-6 ára, undir svæfingu með fræðslu og kennslu í bjargráðum sem geta hjálpað þeim að takast á við kvíða og hræðslu en börn sem þurfa að gangast undir fulla svæfingu, vegna skurðaðgerðar eða annarrar meðferðar sýna oft mikinn kvíða. Tengsl hafa fundist á milli kvíða barna fyrir aðgerðir og bráðaæsings, verkja og neikvæðra hegðunarbreytinga eftir aðgerð og getur slíkt haft áhrif á bata. Rannsóknir sýna að fræðsla í ýmsu formi fyrir aðgerð getur dregið úr kvíða og er Lokbrá einmitt ætlað að draga úr kvíða barnanna fyrir svæfingu. Verkefnið er samstarfsverkefni LSH, HÍ (hjúkrunarfræðideildar) og háskólans í Turku (hjúkrunarfræðideild).
Styrkþegar: Aðalheiður Stefánsdóttir, Brynja Ingadóttir og Katrín Njálsdóttir
6. Mía, Moli og Maríus – vandræðasögur
Vandræðasögurnar um Mola, Míu og Maríus hafa það að markmiði að efla tilfinningameðvitund hjá börnum og þjálfa samkennd. Sögurnar eru fimm og allar byggðar upp með svipuðu móti. Vinirnir Mía, Moli og Maríus lenda í ágreiningi eftir annars rólega og friðsama byrjun í ósköp kunnuglegum aðstæðum í leikskóla. Á hápunkti árekstranna er sagan stöðvuð og lesendur beðnir um að slást í leikinn með því að svara spurningum um tildrög aðstæðna og líðan sögupersónanna. Einnig eru spurðar spurningar sem snúa að eigin reynslu barnsins. Að lokum er sagan dregin í land með farsælum endi. Sögurnar fimm eru settar saman í eina bók sem er myndskreytt vatnslitamyndum Ragnheiðar Jónsdóttur. Styrknum verður varið til þess að gefa öllum leikskólum landsins, 245 talsins, (skv. tölum frá Hagstofunni 2017) eintak af bókinni.
Styrkþegar: Fjóla Ósk Aðalsteinsdóttir, Alexandra Gunnlaugsdóttir og Ragnheiður Jónsdóttir
7. Bæklingurinn Ung börn og snjalltæki
Í vetur kom út bæklingurinn Ung börn og snjalltæki – Grunnur að góðri byrjun. Var hann unninn í tengslum við meistaraverkefni Ingibjargar Jónsdóttur í samstarfi við Heimili og skóla, landssamtök foreldra og SAFT árið 2017. Bæklingurinn fjallar um snjalltæki á heimilum en notkun þeirra felur í sér nýjar áskoranir og tækifæri í uppeldi barna frá unga aldri. Hann inniheldur ráð og gátlista til þess að hjálpa foreldrum að stuðla að því að barnið fari vel af stað með notkun tækjanna og hverju skuli sérstaklega hugað að. Bæklingurinn hefur verið sendur til foreldra elstu barna í leikskóla og foreldra barna í fyrsta bekk í öllum skólum landsins. Margir skólar hafa óskað eftir honum fyrir fleiri foreldra barna og verður styrk Sumargjafar varið til þess að senda öllum leikskólaforeldrum bæklinginn.
Styrkþegi: Heimili og skóli, landssamtök foreldra
Tengiliður: Hildur Halldórsdóttir
8. Samvera og góðar minningar – Sumarbúðir fyrir fjölskyldur
Um er að ræða um skipulagt sumarfrí fyrir efnalitlar barnafjölskylur í sumarbúðum skáta á Úlfljótsvatni í júní í sumar, alls 50 – 60 manns. Hjálparstarf kirkjunnar og Hjálpræðisherinn á Íslandi standa saman að sumarfríinu. Markmiðið með verkefninu er að draga úr félagslegri einangrun og stuðla að samveru og gæðastundum efnalítilla fjölskyldna sem svo skapa góðar minningar. Lögð er áhersla á að blanda saman þjóðernum og er áætlað að um þriðjungur þátttakenda verði fjölskyldur af erlendu bergi brotnu. Sumarbúðirnar eru þátttkendum að kostnaðarlausu.
Styrkþegi: Hjálparstarf kirkjunnar
Tengiliður: Atli Geir Hafliðason
9. Árstíðirnar – tónlistarsaga fyrir börn – fyrir sögumann, kammersveit og dansara
Styrkurinn er ætlaður fyrir útgáfutónleika með nýju tónlistarævintýri þar sem Árstíðirnar eftir Vivaldi tengjast inn í sögu eftir Pamelu De Sensi stjórnanda Töfrahurðar. Tónleikarnir verða hluti af tónleikaröð Kammersveitar Reykjavíkur í tilefni af 45 ára afmælisári hennar árið 2019. Tónleikarnir verða haldnir í nóvember í Norðurljósasal Hörpu og verða útgáfutónleikar þar sem fagnað verður nýrri myndskreyttri bók fyrir börn og unglinga sem inniheldur hljóðrit með sögunni og tónlist Vivaldi. Í bókinni verður einnig stutt ágrip af sögu Kammersveitar Reykjavíkur sem ætlað er að kynna ungu fólki starf sveitarinnar. Valgerður Guðnadóttir söngkona verður sögumaður.
Styrkþegi: Kammersveit Reykjavíkur og Töfrahurð
Tengiliður: Pamela De Sensi
10. Velkomin til Íslands – Skólinn minn
Verkefnið til Velkomin til Íslands – Skólinn minn er náms- og verkefnabók fyrir byrjendur sem hafa annað móðurmál en íslensku. Bókin verður byggð upp á myndum og verkefnum tengd myndunum. Útgáfu bókarinnar er ætlað að bregðast við þeim skorti sem er á námsefni fyrir byrjendur sem eru að læra íslensku sem annað mál. Nemendum með íslensku sem annað mál hefur fjölgað ört; árið 1997 voru þeir 377 í grunnskólum landsins og árið 2014 voru þeir orðnir 3.275. Mikill skortur er á námsefni fyrir þennan hóp og er útgáfa bókinnar Velkomin til Íslands – Skólinn minn liður í að bæta úr því.
Styrkþegi: Pálína Þorsteinsdóttir
11. Listasmiðjur fyrir Dýradaginn 22. maí 2019
Dýradagurinn verður haldinn í fyrsta sinn á Íslandi 22. maí n.k. en þessi dagur er alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni. Dýradagurinn er valdeflandi viðburður sem gefur nemendum tækifæri til að læra um og vekja athygli á m.a. loftslagsbreytingum og lífbreytileika. Gengið verður í skrúðgöngu frá Laugarnesskóla yfir í Grasagarðinn þar sem verður skipulögð dagskrá. Þema göngunnar er málefni hafsins og viðburðurinn verður settur upp sem blanda af umhverfisfræðslu og skapandi vinnu með börnum og ungmennum í skóla, í Myndlistarskóla Reykjavíkur, í Norræna húsinu og Gerðubergi í tengslum við Barnamenningarhátíð. Búningar og/eða grímur verða unnar úr endurnýttum efnivið og munu endurspegla þema göngunnar, sem er málefni hafsins.
Styrkþegi: Landvernd
Tengiliður: Rannveig Magnúsdóttir
12. Te & tíðir – kynfræðsla
Að sögn Sigríðar Daggar Arnardóttur kynfræðings greina ungar stúlkur gjarnan frá því í kynfræðslu að þær upplifi sig óundirbúnar fyrir það að byrja á blæðingum, bæði skorti þar fræðslu og samtal um hvað gerist og hvernig það gerist. Tíðarskömm er að sögn Sigríðar Daggar raunverulegt fyrirbæri og getur haft áhrif á hversdagslegt líf unglings, bæði líkamlega og andlega. Það er reynsla Siggu Daggar af níu ára kynfræðslu um allt land að þekking unglinga á blæðingum sé skammarlega lítil og samtal milli unglinga og foreldra afar takmarkað. Verkefninu sem hér er styrkt er ætlað að bæta úr þessu en það felst í gerð handbókar og fræðslumyndbanda auk hittinga þar sem konur koma saman, drekka te og deila eigin reynslu af blæðingum.
Styrkþegi: Sigríður Dögg Arnardóttir
13. Myrkrabörn – tónlistarhátíð ætluð börnum
Myrkrabörn er ný tónlistarhátíð ætluð börnum. Hátíðinni er ætlað að gera samtímatónlist aðgengilega fyrir börn og fjölskyldur þeirra og standa fyrir viðburðum sem eru upplýsandi og fræðandi samhliða því að vera skemmtileg. Hátíðin verður haldin 30. janúar til 1. febrúar í Kaldalóni í Hörpu. Myrkrabörnum er ætlað að opna heim samtímatónlistar fyrir ungum áheyrendum og skapa vettvang þar sem börn geta kynnst fjölbreyttu landslagi samtímatónlistar ásamt því að gera samtímatónlist aðgengilega sem flestum. Á dagskrá eru m.a. tónleikar með Drengjakór Reykjavíkur og opnar vinnustofur þar sem börn fá að prufa nýstárleg hljóðfæri og aðferðir í sköpun samtímatónlistar. Aðgangur að Myrkrabörnum er öllum 10 ára og yngri ókeypis og miðaverði verður haldið í algjöru lágmarki til þess að sem flestir geti sótt hátíðina. Myrkrabörn er hliðarhátíð Myrkra músíkdaga sem fer fram á sama tíma en er þó alveg sjálfstæð.
Styrkþegi: Tónskáldafélag Íslands
Tengiliður: Gunnar Karel Másson