Barnadagurinn

Á sumardaginn fyrsta 1934 hóf göngu sína blaðið Barnadagurinn. Þetta nýja blað náði allmikilli útbreiðslu sem fór vaxandi. Ritstjóri var Ísak Jónsson. Blaðið var gefið út til ársins 1938 en árið 1939 breytti blaðið um nafn og nefndist Barnadagsblaðið. Árið 1956 fékk það nafnið Sumardagurinn fyrsti og kom út til 1978.

Með því að smella hér er hægt að skoða blaðið inn á timarit.is.